Dagskrá (og vinnusvæði) má nálgast hér
Mánudagur 28. apríl, 13.15-16.30: Staða skóla- og fræðsluskrifstofa
Spurningar til umræðu:
Fyrri umræða:
- Hver er staðan?
- Hvað er helst verið að gera vel?
- Hverju er helst ábótavant? Hvað vantar? Hvað er brýnast að bæta?
- Hvar liggja helstu sóknarfæri? Til hvaða aðgerða getum við gripið til að efla skólaþjónustuna? Getum við unnið meira saman?
- Hvert er, hvert verður eða hvert ætti að vera hlutverk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu?
Kveikjur:
- Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
- Helgi Grímsson, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Seinni umræða:
- Raðið sóknarfærum / mögulegum aðgerðum í forgangsröð?
Þriðjudagur 29. apríl, 9.00-10.00: Ávarp mennta- og barnamálaráðherra og samræða um samkomulag um fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda
- Ávarp Guðmundar Inga Kristinssonar, mennta- og barnamálaráðherra
- Erindi Halldóru Drafnar Gunnarsdóttur, skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu, um nýtt samkomulag um fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Þriðjudagur 29. apríl, 10.20-11.45: Farsældarmálin
Spurningar til umræðu:
- Staða innleiðingar farsældarlaganna (stöðumat).
- Hverju viljum við að farsældin skili?
- Hvernig komum við farsældinni betur inn á 1. stiginu?
- Hvernig verður best staðið að fræðslu (foreldrar, starfsfólk skólanna, íþróttafélögin, aðilar í tómstundastarfi, aðrir)?
- Hverjar eru stærstu áskoranirnar nú og hvernig er best að bregðast við þeim?
Kveikjur:
- Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar
- Hlöðver Gunnarsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Borgarbyggðar
11.45-12.00
Hákon Sigursteinsson og Hulda Björk Finnsdóttir verkefnastjórar farsældar barna í Reykjavík: Farsæld barna og Betri borg fyrir börn
Þriðjudagur 29. apríl, 13.00-14.30: Hvernig nýtum við gögn til að bæta gæði í skólastarfi?
Spurningar til umræðu:
- Hvaða gögn og gæðakerfi eru til og hvernig eru þau að nýtast?
- Hvaða gögn eru að nýtast skólum / sveitarfélögum? Skoðið listann! (Smellið hér)
- Hvaða gögn má nýta betur?
- Hvaða gögn vantar og hver á að hafa frumkvæði að því að þau verði til?
- Hvaða sóknarfæri eru varðandi aukið samstarf skóla- og fræðsluskrifstofa um þessi mál?
- Hvað er brýnast að gera á þessum vettvangi?
Kveikjur:
- Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
- Helgi Grímsson, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Þriðjudagur 29. apríl, 15.00-16.00:Hvernig verður staðið að innra og ytra mati í framtíðinni?
Samræða við fulltrúa mennta- og barnamálaráðuneytis (ytra mat) og Miðstöðvar mennta og skólaþjónustu. Pallborðsumræður. Fulltrúar mennta- og barnamálaráðuneytisins verða Björk Ólafsdóttir og Selma Barðdal Reynisdóttir sérfræðingar og fulltrúi Miðstöðvar mennta- og skólaþjónustu Bergdís Wilson sviðstjóri skólaþróunarsviðs.
Miðvikudagur 30. apríl, 9.00-11.15: Leikskólinn á krossgötum – getum við unnið meira saman?
Spurningar til umræðu:
- Er æskilegt / hægt að samræma starfstíma og þjónustustig leikskólanna?
- Hvernig getum við komið betur til móts við starfsfólk með annað móðurmál en íslensku?
- Hvernig stuðlum við að jákvæðari umræðu um leikskólastigið?
- Hvaða sóknarfæri eru í samstarfi um málefni leikskólanna þvert á sveitarfélög?
Kveikjur:
- Ólafur Brynjar Bjarkason, skrifstofustjóri hjá Skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar
- Þrúður Hjelm, leiðtogi málefna leikskóla í Mosfellsbæ
- Glærur Ólafs og Þrúðar

