Þemanám (e. project-based learning, project approach) byggist oftast á sjálfstæðri upplýsingaleit nemenda um tiltekið efni sem þeir kynna sér til hlítar. Verkefnin eru oftar en ekki framkvæmd af hópum, en geta einnig verið einstaklingsverkefni. Aðferðin hentar nemendum á öllum aldri. Á leikskólastigi er algengt að nota orðið könnunaraðferð. Aðferðin hefur einnig verið kennd við samþættingu, verkefnamiðað nám og efniskönnun.
Góð heimild um þemanám er bók Lilju M. Jónsdóttur Skapandi skólastarf: Handbók fyrir kennara og kennaranema um skipulagningu þemanáms. Sjá einnig bók hennar Kennarabók með í fullorðinna tölu (kennsluleiðbeiningar með viðfangsefni þar sem lögð er áhersla á skapandi nám og samþættingu).
Sjá einnig til dæmis á þessum vefjum:
- The Project Approach (vefsetur Sylviu C. Chard)
- Vefur Buck Institute for Education (BIE) um efniskönnun: http://bie.org/
- Á vefsetrinu Edutopia er fjallað um efniskönnunarverkefni: Project Based Learning
- YouthLearn – Bandarískur vefur sem tengir saman upplýsingatækni, miðlun og könnunaraðferðir
- Verkefnamiðað nám í grunnskóla (vefsíða Sigríðar Helgu Sigurðardóttur)
Áhugaverð verkefni úr skólum hér á landi:
- Nemendur í Grunnskólanum á Bakkafirði vinna sjálfstæð verkefni (grein í Netlu)
- Þemanám í Brúarásskóla (grein í Skólaþráðum)
- Draumalandið – verkefni á unglingastigi Grunnskólans í Borgarnesi
- Um áhugasviðsverkefni í Grunnskólanum á Suðureyri(grein Jónu Benediktsdóttur í Skólaþráðum)
- Verkefnamiðað nám / samþætting á unglingastigi í Langholtsskóla:
- Grein í Skólaþráðum: “We have this thing called sprellifix” – Samþætting námsgreina í 9. og 10. bekk Langholtsskóla
- Efni frá Menntastefnumóti: Smiðjan í skapandi skólastarfi
- Heimasíða Langholtsskólaverkefnisins: smidjan.com
- Verkefnamiðað nám í Vallaskóla: Heimasíða smiðjustarfs
- Hugmyndabanki frá spjaldtölvuteyminu í Kópavogi: 10 verkefni sem byggja á samþættingu námsgreina á mið og unglingastigi
Á undanförnum árum hefur áhersla á skapandi skil vaxið mjög. Hér eru skemmtileg dæmi um hvernig nokkrir kennarar standa að því að kynna möguleika fyrir nemendum.
- Menningarmótsverkefnið, sem er hluti af fjölmenningarstarfi Borgarbókasafns Reykjavíkur, byggist á könnunaraðferðinni, sjá um það á þessari slóð: http://tungumalatorg.is/menningarmot/