Nú er lokið rannsókn Skólastofunnar sfl á starfsumhverfi i grunnskólum, álagi og áskorunum. Einnig var leitað er hugmynda um leiðir til úrbóta. Rannsóknin var unnin á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnisstjórar heimsóttu síðasta vor og haust 25 grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og áttu samræður (rýnihópaviðtöl) við stjórnendur, kennara og annað starfsfólk. Þessum viðtölum var fylgt eftir með spurningakönnun sem send var til starfsfólks allra grunnskólanna. Menntavísindastofnun sá um framkvæmd könnunarinnar.
Með rannsókninni var eitast við að fá trausta og skýra mynd á starfsumhverfi í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við þær margvíslegu áskoranir sem starfsfólk glímir við og fram hafa komið í samfélagsumræðu og fjölmiðlum.
Sjá nánar hér.

