Námskeið – þróunarverkefni: Fjölbreytt námsmat 2007–2009

Haustið 2007 hóf starfsfólk grunnskólanna í Fjallabyggð (Grunnskólinn á Siglufirði og Grunnskóli Ólafsfjarðar) skólaþróunarverkefni sem beindist að þróun námsmatsaðferða í skólunum. Verkefnið var hugsað til tveggja ára. Markmið þess var að skipuleggja og þróa einstaklingsmiðað námsmat þar sem byggt yrði á fjölbreyttum aðferðum. Ráðgjafi við framkvæmd verkefnsins var Ingvar Sigurgeirsson prófessor við Kennaraháskóla Íslands (nú Menntavísindasvið Háskóla Íslands).

Meginmarkmið verkefnisins var að þróa og festa í sessi fjölbreyttar leiðir til leiðsagnarmiðaðs námsmats í anda einstaklingsmiðaðs náms. Stefnt var að því að:

  • Kynna og ræða hugmyndir og dæmi um áhugaverðar leiðir að fjölbreyttu námsmati sem tekur mið af einstaklingsmiðuðum kennsluháttum.
  • Gefa kennurum og öðrum starfsmönnum tækifæri til að þróa námsmatsaðferðir sínar með skipulegum hætti og miðla reynslu sinni til annarra (milli skólanna, samstarfsfólks, starfsmanna í öðrum skólum, foreldra).
  • Skapa vettvang fyrir starfsfólk skólanna til að dýpka þekkingu sína á fjölbreyttum og áhugaverðum námsmatsaðferðum, einkum þeim sem henta í einstaklingsmiðuðu námi
  • Efla þekkingu starfsmanna á innlendum og erlendum heimildum um námsmatsaðferðir.
  • Vinna að námsmatsstefnu skólanna.

Verkefnið hófst með námskeiði á Siglufirði 20.–21. ágúst 2007. Í lok námskeiðsins voru myndaðir þróunarhópar sem unnu að verkefnum sínum fyrir veturinn. Hóparnir hittust í janúar 2008 hittust þróunarhóparnir í Ólafsfirði og báru saman bækur sínar.

Skýrslur skólanna: