Nú er Hrekkjavakan framundan. Á dögunum barst okkur skemmtileg sending frá Guðmanni Þorvaldssyni, kennara, tónlistarmanni og þúsundþjalasmið á Eskifirði. Guðmann hefur samið texta við lagið úr kvikmyndinni og sjónvarpsþáttunum um Adams fjölskylduna. Hann gaf mér góðfúslegt leyfi til að deila þessu efni. Draugalega skemmtun!

