
Í þessum þætti verður sjónum beint að leikjum frá öllum heimshornum þar sem tónlist, söngur og hreyfing fara saman. Þetta eru klappleikir, hringleikir, söngleikir, rytmaleikir, nafnaleikir o.fl.
Söngur eða einhverskonar söngl hefur lengi verið hluti af leikjum barna. Í spunaleikjum er oft sönglað og í leikjum þar sem reglur eru formlegri hafa verið notuð ákveðin lög og textar við hreyfingar. Söng- og hreyfileikir eru þekktir um víða veröld og merkilegt að sjá hversu keimlíkir þeir geta verið milli menningarsamfélaga, t.d. má finna mjög líka steinaleiki í Mexíkó, Pólónesíu og vestur Afríku (Goodkin, 2002).
Á þessari síðu http://en.wikipedia.org/wiki/Music_and_movement er ýmislegt efni um tónlist og hreyfingu, m.a. greinar um efnið og upplýsingar um leiki og skipulag kennslu.
Íslenskt efni má víða finna. Benda má á bókina Með á nótunum sem Hrafnhildur Sigurðardóttir tók saman og JPV útgáfa gaf út 2006. Bókin inniheldur marga gamla og góða hreyfileiki, með textum og nótum. Elfa Lilja Gísladóttir hefur gefið út bókina Hring eftir hring. Elfa er einnig einn af höfundum bókarinnar Það var lagið sem Námsgagnastofnun gaf út (2004). Nanna Hlíf Ingvadóttir skrifaði bókina Stafspil sem Menntamálastofnun gaf út. Loks má benda á Tónlist í leikskóla eftir Sigríði Pálmadóttur (Forlagið, 2010). Og ekki má gleyma bókum Unu Margrétar Jónsdóttur: Allir í leik – Söngvaleikir barna.
Á Leikjavefnum eru nokkrir sönghreyfileikir. Flestir þeirra henta vel á leikskólastigi og fyrir yngstu börnin í grunnskólanum.
Aftur í yfirlit yfir námsþætti

