3. námsþáttur: Leikjavefurinn – Leikjabankinn

Markmið þessa viðfangsefnis er að gera þig handgengin(n) Leikjavefnum – Leikjabankanum (www.leikjavefurinn.is).

Allir nemendur námskeiðsins leysa þessi verkefni:

  1. Opnið Leikjavefinn – Leikjabankann (www.leikjavefurinn.is). Skoðið allar síðurnar sem vísað er á. Lesið vel það sem lesa má undir krækjunni UM LEIKJAVEFINN / LEIKJABANKANN.
  2. Skoðið leikjasafnið og veljið síðan þrjá  leikjaflokka til að skoða nánar. Gerið grein fyrir því hverjir þeir eru. Skoðið a.m.k. tvo leiki í hverjum flokki. Veljið þann sem ykkur líst best á. Gerið grein fyrir því hvers vegna. Fjallið um það í stuttu máli hvernig þið gætuð notað hann í kennslu eða frístundastarfi og hvernig þið gætuð hugsanlega breytt honum. Prófið leikinn sé þess nokkur kostur.
  3. Á forsíðu Leikjavefsins – Leikjabankans (www.leikjavefurinn.is) er bent á aðra áhugaverða leikjavefi (sjá hér). Veljið a.m.k. þrjá þessara vefja til að skoða nánar. Veljið helst vefi með leikjum sem höfða til ykkar. Gefið ykkur nokkra stund til að skoða þessa vefi og mynda ykkur skoðun á þeim. Segið skoðun ykkar á þeim í stuttu máli.
  4. Gerið tillögur um hvernig æskilegt væri að þróa þetta leikjasafn (Leikjavefinn – Leikjabankann) áfram.

Aftur í yfirlit yfir námsþætti